rammi

Ívar Sigurbergsson heiti ég og er í fjarnámi í Kennaraháskóla Íslands á grunnskólabraut með upplýsingatækni sem kjörsvið. Hér er að finna verkefni sem hef verið að vinna í tengslum við námskeiðið Þekkingarsamfélagið. Samhliða námi þá kenni ég tónmennt og upplýsingatækni í Lindaskóla og sé um tölvukerfi skólans og heimasíðu. Þetta er sjöunda árið sem ég kenni í Lindaskóla og fjórða árið mitt í Kennaraháskólanum en ég útskrifast næsta vor. Myndina hér fyrir neðan tók ég út á Seltjarnarnesi og það má segja að vegvísarnir á myndinni tengist á sinn hátt upplýsingatækninni .